miðvikudagur, apríl 26, 2006


Mér þykir að mér sótt. Eins og þið vitið kannski þá bý ég í hjarta Akranessbæjar. Okkar yndislega bæjar eða e-ð. Sjálfstæðisflokkurinn opnaði nýverið kosningaskrifstofu í næsta húsi við mig og Samfylkingin stuttu síðar í sama húsinu.
Ekki nóg með það heldur opnaði Heimaskagi þar beint/ská á móti. En í kvöld var ég nú bara að frétta að Vinstri Grænir vinir mínir eru að fara að opna hér í gæludýrabúðinni hérna við hliðina. Hversu hallærislegt er þetta?
Ég er nú alveg farin að íhuga það að bjóða framsókn að koma bara líka. Enda er þetta allt sama pakkið ;)
Læt hérna mynd af Steingrími fylgja. Uppáhaldsþingmaðurinn og svona

En sjáumst síðar ;*

Lag færslunar> Paranoid Android-Radiohead

sunnudagur, apríl 16, 2006

Ég verð að skrifa um nokkra hluti sem eru að fara alveg ferlega í taugarnar á mér þessa daganna. Það er nú kannski ekkert nýtt á nálinni að ég sé svolítið pirruð en ég er það heldur ekkert, bara pirruð útaf einhverju ákveðnu. En allavega það er komin ný auglýsing frá gulusíðunum, sem eru símanúmer fyrir fyrirtæki og starfsemi. Þetta er svona sjónvarpsauglýsing og í aðalhlutverkinu er enginn annar en Egill Gillzenegger ógeð og rotta. Undir þessari auglýsingu er spilað remix af Stayin' Alive með Bee Gees og hann er í gulum jakkafötum og reigsar um með málningarfötu. Hahaha þetta er svo fyndið og sniðugt, eða ekki. Já ókey það er alveg hægt að djóka eitthvað með þetta flottasta byrjunaratriði úr Saturday Night Fever en þetta er bara ekkert fyndið, bara ömurlega glatað og gulu síðurnar seljast ekkert betur þó að Gillzenegger sé asnalegur þarna í auglýsingunni. Svo er annað sem er rosalega vinsælt í uræðunni þessa daganna. Gengið. Dollarinn og evran eru að hækka sig grimmt og ókey kemur ekkert mér við sérstaklega og svo kemur Halldór Ásgrímsson og kennir Den Danske Bank um. Sko íslendingar ættu að skammast sín, að kjósa þetta ógeð á þing og þar að auki flokkinn, Framsóknarflokkinn eða bara ex-bé.
Auglýsingin pirrar mig samt meira en Halldór.
Í dag er páskadagur og ég fékk ekkert páskaegg, bara Kinderegg. Það er miklu flottara, fylgir flott dót með og þannig. Skólinn byrjar eftir 3 daga og þá eru bara 7 dagar eftir og svo próf. Þessir 7 dagar eru samt ekkert spennandi því að ég þarf að taka færnisprór, 3 munnleg próf og reyna að koma vetrareinkunninni minni í stæ upp í 4,5 og læra mikið svo að ég fái 6 í stæ. Sætti mig ekki við minna. Útileikfimi og læti. Djöfull langar mig að gera eittvað miður fallegt eða þægilegt við blessaðan íþróttakennarann fyrir að sitja mann í ógeðslega útileikfimi og leiðindi svona rétt til þess að gera lífið aðeins leiðinlegra. Sumir vilja bara gera öðrum illt

Lagið>I'm on an Island- The Kinks ;)