Ókey nú kemur alveg rosaleg getraun um einhverja tónlistarmenn ofl. Þetta er alveg drulluerfið getraun þannig að það þarf að vita eitthvað eða leita mjög vel
1.Hvað heitir dóttir þýsku vísnasöngkonunnar Evu Mariu Hagen og hvað heitir annar eiginmaður hennar og hvað var frekar skrýtið við þetta samband þeirra?
2.Chad Kroeger og Mike Kroeger eru kanadískir bræður. Í hvaða næstum KRISTILEGU hljómsveit eru þeir í ?
3.Frá hvaða landi er ógeðslega hljómsveitin Scissor Sisters ?
4. Hvað er fyrsti hittarinn með hljómsveitinni the Loving Spoonful og í hvaða bandarísku unglingamynd var það sungið af kór ?
5.Frá hvaða landi er hin ágæta sveit Ladysmith Black Mambazo og af hvaða tilefni komu meðlimir aftur saman og spiluðu í London sumarið 2003?
Nú er það síðasta spurningin og hún ætti að vera nokkuð erfið
6.Þetta band var fyrst stofnað undir nafninu Stiff Kittens árið 1977 .Síðar var nafninu breytt í annað frææægara. Stephen Morris er trommari þessarar sveitar ef það segir e-ð. Anyways þá vil ég vita hvað þetta band heitir, hvað söngvarinn HÉT(hann er látinn)og hvert er þeirra þekktasta lag?svo vil ég líka vita hvaða band eftirlifandi meðlimir stofnuðu síðan?
Gegt flott verðlaun eru í boði ( ég lofa) og já svariði í kommentum takk fyrir oog bæjó ;)
Lag líðandi stundar> já bara America með Simon et Garfunkel
