Ég verð að skrifa um nokkra hluti sem eru að fara alveg ferlega í taugarnar á mér þessa daganna. Það er nú kannski ekkert nýtt á nálinni að ég sé svolítið pirruð en ég er það heldur ekkert, bara pirruð útaf einhverju ákveðnu. En allavega það er komin ný auglýsing frá gulusíðunum, sem eru símanúmer fyrir fyrirtæki og starfsemi. Þetta er svona sjónvarpsauglýsing og í aðalhlutverkinu er enginn annar en Egill Gillzenegger ógeð og rotta. Undir þessari auglýsingu er spilað remix af Stayin' Alive með Bee Gees og hann er í gulum jakkafötum og reigsar um með málningarfötu. Hahaha þetta er svo fyndið og sniðugt, eða ekki. Já ókey það er alveg hægt að djóka eitthvað með þetta flottasta byrjunaratriði úr Saturday Night Fever en þetta er bara ekkert fyndið, bara ömurlega glatað og gulu síðurnar seljast ekkert betur þó að Gillzenegger sé asnalegur þarna í auglýsingunni. Svo er annað sem er rosalega vinsælt í uræðunni þessa daganna. Gengið. Dollarinn og evran eru að hækka sig grimmt og ókey kemur ekkert mér við sérstaklega og svo kemur Halldór Ásgrímsson og kennir Den Danske Bank um. Sko íslendingar ættu að skammast sín, að kjósa þetta ógeð á þing og þar að auki flokkinn, Framsóknarflokkinn eða bara ex-bé.
Auglýsingin pirrar mig samt meira en Halldór.
Í dag er páskadagur og ég fékk ekkert páskaegg, bara Kinderegg. Það er miklu flottara, fylgir flott dót með og þannig. Skólinn byrjar eftir 3 daga og þá eru bara 7 dagar eftir og svo próf. Þessir 7 dagar eru samt ekkert spennandi því að ég þarf að taka færnisprór, 3 munnleg próf og reyna að koma vetrareinkunninni minni í stæ upp í 4,5 og læra mikið svo að ég fái 6 í stæ. Sætti mig ekki við minna. Útileikfimi og læti. Djöfull langar mig að gera eittvað miður fallegt eða þægilegt við blessaðan íþróttakennarann fyrir að sitja mann í ógeðslega útileikfimi og leiðindi svona rétt til þess að gera lífið aðeins leiðinlegra. Sumir vilja bara gera öðrum illt
Lagið>I'm on an Island- The Kinks ;)

6 Comments:
Hvar er Alli?
Heima hjá sér eða e-ð ;D
ég var heima hjá fríðu áðan ...:D
alli a.k.a alli sleikur
Benni langar þig að deyja? Hættu að leggja Alla í einelti !!!!!
já benni vertu eins og maður. dísös.
Skrifa ummæli
<< Home